
ASÍ fundar með Byggiðn í tvígang
Alþýðusamband Íslands mun á næstu dögum og vikum fara hringferð um landið og ræða við stjórnir aðildarfélaga ASÍ, trúnaðarráð og áhugasama félagsmenn. Ferðirnar eru liður í undirbúningi 46. þings Alþýðusambands Íslands. Önnur hringferð var farin í maí en nú er að líða að þeirri seinni.
Í þessari hringferð verða tillögur miðstjórnar að ályktunum ræddar, sem samdar voru í kjölfar fyrri hringferðarinnar. Tillögum að framkvæmdum og aðgerðum að hálfu Alþýðusambandsins og aðildarfélaganna verður forgangsraðað.
Bent er á að einstaka aðildarsamtök geti lögum samkvæmt gert tillögur til breytinga á tillögum miðstjórnar um ályktanir og gert nýjar tillögur um mál sem þau óska að tekin verði fyrir á þinginu. Slíkar tillögur skal senda miðstjórn einum mánuði fyrir sambandsþing þ.e. fyrir 16. september 2024. Skal miðstjórn leggja mál þau og tillögur fyrir þingið, ásamt umsögn sinni.
Fundirnir sem nú er verið að undirbúa verða um tvær klukkustundir að lengd og fara fram á tímabilinu frá 27. ágúst til 12. september. Þeir hefjast klukkan 18 en boðið verður upp á létta máltíð á meðan fundunum stendur.
Byggiðn hvetur félagsfólk til að mæta til þessara funda. Mikilvægt er að þátttakendur skrái sig en hægt er að boða komu sína á byggidn@byggidn.is.
Fundir fyrir Byggiðn verða annars vegar á Stórhöfða þann 27. ágúst, kl. 18:00. Hins vegar verður fundur á Skipagötu 14 Akureyri, 5. september kl. 18:00.
Hér fyrir neðan má kynna sér þrjár tillögur miðstjórnar að ályktunum.