Desemberuppbót

Reglur og skilyrði

Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllu starfsfólki sem verið hefur samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða er í starfi fyrstu viku í desember.

Fullt ársstarf telst 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1. desember til 30. nóvember ár hvert í stað almanaksárs.

Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum.

Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.

Upphæðir eftir árum (2024–2027)
Ár (almanaksár) Upphæð (kr.) Athugasemd
2024106.000Miðað við fullt starf (45 vikur)
2025110.000Miðað við fullt starf (45 vikur)
2026114.000Miðað við fullt starf (45 vikur)
2027118.000Miðað við fullt starf (45 vikur)

Upphæðir hlutfallsreiknast eftir starfstíma og starfshlutfalli; réttur skv. 12 vikna reglu eða viðveru 1. viku í desember.