Greinar
Nemendur í VMA styrktir til kaupa á hlífðarbúnaði

Nemendur í VMA styrktir til kaupa á hlífðarbúnaði

Nemendur í grunndeild byggingagreina í VMA fengu á dögunum afhentan vinnufatnað á persónuhlífar sem Byggiðn tók þátt í að gefa. 36 nemendur fengu pakkann sem samanstendur af stuttermabol, hettupeysu, vinnujakka, smíðabuxum, öryggisskóm, heyrnarhlífum, hlífðargleraugum, hjálmi og rykgrímu. Fjallað er um þetta á vef VMA.

Fram kemur að listaverð þessa búnaðar sé um eitt hundrað þúsund krónur en skólinn og Byggiðn leggja til fjármuni til kaupanna aug þess sem söluaðliar veiti rausnarlegan afslátt. Nemendur geti með þessu samstillta átaki fengið pakkann á 14 þúsund krónur.

Sjá einnig: Byggiðn heimsótti byggingadeild VMA

„Á öryggismálin er lögð rík áhersla í náminu í byggingadeild, enda getur eitt og annað farið úrskeiðis ef fyllsta öryggis er ekki gætt í verklegri kennslu. Þannig er gerð krafa um að allir gangi um í öryggisskóm og noti viðhlítandi öryggishlífar á verkstæði, við smíði frístundahúss utan dyra og í heimsóknum nemenda á vinnustaði utan skólans. Fatnaðinn geta nemendur geymt í skápum í byggingadeild,” segir í frétt á vef VMA.

Að lokum er Byggiðn og öðrum velgjörðaraðilum þakkaður stuðningurinn.

Mynd/VMA