
Tilgreind séreign
Í byrjun árs 2016 var samþykktur nýr kjarasamningu milli ASÍ og SA. Samkvæmt honum hækkar framlag launagreiðenda í lífeyrissjóð úr 8% í 11,5% af launum í þremur skrefum fram til 1. Júlí 2018.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins vegna tilgreindrar séreignar voru samþykktar af fulltrúum á aukaársfundi Birtu lífeyrissjóðs, 22. júní. Samþykktirnar hafa verið sendar Fjármálaeftirlitinu til umsagnar og bíða staðfestingar fjármála- og efnahagsráðuneytis.
Sjóðfélagar geta ráðstafað framlagi umfram 12,0 % heildarframlags að hluta eða öllu leyti í tilgreinda séreign frá 1. Júlí 2017.
Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér þennan valkost vel og áhrif á réttindi til áfalla- og fjölskyldutrygginga og ævilangs lífeyris.
Við hvetjum alla til að prófa nýju reiknivél Birtu sem sýnir fjárhæðir miðað við mismunandi hlutfall heildarframlags í samtryggingu, tilgreinda séreign og hefðbundinn séreignarsparnað.
Reiknivélin verður aðgengileg á heimasíðu Birtu frá 1. júlí n.k. birta.is
Hér er linkur á upplýsingar um Tilgreinda séreign hjá Birtu lífeyrisjóð.
Hér er einblöðungur um tilgreinda séreign.