Greinar
Þrívíddarprentari fyrir byggingamenn

Þrívíddarprentari fyrir byggingamenn

Franskt sprotafyrirtæki hefur hafið undirbúning að uppsetningu gríðarstórs þrívíddarprentara fyrir byggingaiðnað. Hann verður hluti af neti 50 samtengdra þrívíddarprentara, víðs vegar um heiminn, sem fyrirtækið hyggst taka í notkun fyrir árið 2025.

Fyrsti prentarinn sem fyrirtækið, sem ber nafnið XtreeE, setur upp utan Frakklands verður í Dúbaí en samstarfsaðilinn sem mun starfrækja prentarinn heitir Concreative. Áætlað er að næstu prentarar verði settir upp í Asíu, en viðræður þar að lútandi standa yfir.

Fyrirtækið XtreeE var stofnað í desember 2015 á grunni rannsóknarverkefnisins við arkitekta- og verkfræðiskólann Arts et Métiers ParisTech í Frakklandi. Fyrirtækið hefur, eftir nokkurra ára undirbúning, hafist handa við að bjóða og setja upp þrívíddarprentara sem nýst getur arkitektum, verkfræðingum og framsæknum fyrirtækjum í byggingaiðnaði. Í prentaranum er hægt að hanna og framkalla form sem erfitt hefur verið að gera áður.

Fjármögnun fyrirtækisins er nú lokið og það hafið að bjóða fram vöru sína. Aðstandendur fyrirtækisins segir að markmiðið sé fyrst og fremst að bjóða upp á umhverfisvænan valkost, sem geti allt í senn sparað bæði efni, tíma og fjármuni. „Það verður einnig hægt að búa til ansi óvenjulega hluti,“ er haft eftir framkvæmdastjóranum Alban Mallet, á vef theconstructionindex.co.uk.

Hér fyrir neðan má sjá prentarann að störfum.