Greinar
Sveinsbréf afhent á Akureyri

Sveinsbréf afhent á Akureyri

Sveinsbréf voru afhent við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 10. maí sl. Þar fengu yfir 60 nýsveinar afhend sveinsbréf.

Sveinisbréf voru afhent í vélvirkjun, pípulögnum og í húsasmíði en húsasmiðir voru þeirra fjölmennastir, eða 34. Þar af voru þrjár konur.

Afhendingunni stýrði Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs en þeir Jón Bjarni Jónsson, formaður félagsins, og Sigmundur Kr. Magnússon, nýr starfsmaður félagsins á Akureyri, afhentu bréfin fyrir hönd Byggiðnar.

Þess má geta að Elvar Dúi Kristjánsson náði bestum árangri í pípulögnum yfir landið.

Byggiðn óskar nýsveinum til hamingju með áfangann.

Meðfylgjandi myndir eru frá Iðunni.

www.sindriswan.com