Fréttir
Stöðugleikarnir á Akureyri og Reykjavík

Stöðugleikarnir á Akureyri og Reykjavík

Stöðugleikarnir verða haldnir þann 29. apríl á Akureyri og 30. apríl í Reykjavík. Um er að ræða opinn samtalsfund með atvinnulífinu, sveitarstjórn og fulltrúum stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði um Stöðugleikasamninginn og eftirfylgni við hann, eins og segir í fundarboði Samtaka atvinnulífsins, sem standa að Stöðugleikunum. Öll eru velkomin.

Í kynningu segir enn fremur. „Leiðin að verðstöðugleika og bættum lífskjörum var mörkuð af Samtökum atvinnulífsins á haustmánuðum 2023 í samtali við atvinnulíf og almenning. Í kjölfarið sýndu aðilar vinnumarkaðarins samhug og einurð í vinnu sinni við gerð stefnumarkandi langtímasamninga. Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika.

Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta. Á þessum grunni hefja Samtök atvinnulífsins eftirfylgni við kjarasamninga, með hækkandi sól, undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir.“

Dagskráin í Reykajvík:

Sigurður Ingi Jóhannsson , fjármálaráðherra, Ásthildur Sturludóttir , bæjarstjóri á Akureyri og Aðalsteinn Árni Baldursson , formaður Framsýnar, stéttarfélags Þingeyinga og Bjarnheiður Hallsdóttir , framkvæmdastjóri Kötlu DMI og varaformaður SA, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur , framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þá flytja Gunnar Egill Sigurðsson , forstjóri Samkaupa og Vilborg Jóhannsdóttir , framkvæmdastjóri Bravo ehf. og búðarstýra Centró á Akureyri, hugvekjur.

Dagskráin á Akureyri

Sigurður Ingi Jóhannsson , fjármálaráðherra, Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, og Vilhjálmur Birgisson , formaður Starfsgreinasambandsins og Jónína Guðmundsdóttir , framkvæmdastjóri Coripharma, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur , framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þá flytja Finnur Oddsson , forstjóri Haga og Sigurður Brynjar Pálsson , forstjóri BYKO, hugvekjur.

Formaður og varaformaður Byggiðnar munu sækja Stöðugleikana á Akureyri þann 29. apríl.