
Starf móttökufulltrúa laust til umsóknar
Byggiðn – Félag byggingamanna leitar að þjónustulunduðum einstaklingi í starf móttökufulltrúa á skrifstofu félagsins að Stórhöfða 31, 110 Reykjavík. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka gesta og símsvörun
- Þjónusta og samskipti við félagsfólk
- Umsýsla og skráning, t.d. vegna styrkjaumsókna og bókana orlofshúsa
- Upplýsingamiðlun og aðstoð vegna réttinda-, mennta- og kjaramála
- Ýmis tilfallandi verkefni sem starfinu fylgja
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Þekking á málefnum stéttarfélaga er kostur
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2025. Umsóknir skulu berast í gegnum vefinn www.alfred.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður Byggiðnar, Jón Bjarni Jónsson, í gegnum netfangið jbj@byggidn.is.