Reikniregla yfirvinnu

Kjarabreytingar 2022

Breytingar á kjörum 1. janúar 2022 – samkvæmt kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins

  • Öll dagvinnulaun hækka um a.m.k. kr. 17.250 1 janúar 2022 og 7.875 kr 1 apríl 2022.
  • Lágmarkslaun sveina verða kr. 490.256,- hjá RSÍ, Samiðn, VM og FHS.
  • Tímakaup hækkar a.m.k. um 50,14 kr. pr. tíma 1 apríl 2022 miðað við 157,08 klst á mánuði eða 50,48 kr. pr. tíma miðað við 156 klst á mánuði.
  • Kauptaxtar hækka sérstaklega í samræmi við kjarasamninga. Þeir eru breytilegir eftir kjarasamningum.

Breyting á yfirvinnuálagi

Yfirvinna 1 er greidd fyrir fyrstu 4 klst á viku að jafnaði eða 17,33 klst á mánuði. Álag á yfirvinnu 1 verður 1 % af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Yfirvinna 2 er greidd umfram það. Yfirvinna 2 greiðist fyrir alla tíma umfram 17,33 yfirvinnutíma á mánuði og á nóttunni á milli kl. 00:00-06:00. Álag á yfirvinnu 2 verður 1,15% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu.

Mánaðarlaun (dæmi 1)ÁlagTímakaup yfirvinnu
   
533.750 kr.1,00%5.338 kr. eftir breytingu
Mánaðarlaun (dæmi 2)ÁlagTímakaup yfirvinnu
   
533.750 kr. 1,15%6.138 kr. eftir breytingu


Breytingar á orlofi

Ávinnsla orlofs breytist í flestum kjarasamningum. Við grein 4.1. bætist eftirfarandi: Starfsmaður sem unnið hefur 10 ár í starfsgrein hefur rétt á orlofi í 28 daga og orlofslaunum sem nema 12,07%. Hækkun orlofs tekur gildi 1. maí 2021 þannig að hærri orlofsprósenta er greidd frá þeim tíma. Aukið orlof kemur þannig til töku á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2022.

ATH: Þeir sem eiga ríkari rétt skv. kjarasamningum halda að sjálfsögðu þeim rétti áfram.