
Pílukvöld Félags fagkvenna/kvára og Byggiðnar
Pílukvöld Félags fagkvenna verður haldið á staðnum Oche í Kringlunni laugardaginn 1. mars næstkomandi kl. 18.30.
Tilgangurinn er að leiða saman konur og kvár í ólíkum karllægum störfum eða iðngreinum og efla tengslanet þeirra. Félag fagkvenna er opið fyrir þau sem starfa í karllægu starfi, eru með sveinspróf, á námssamningi eða í námi sem telst vera í karllægri iðngrein.
Mótið er haldið í samstarfi við Byggiðn en vegleg verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin á mótinu – svo ekki missa af.
Hægt verður að spila pílu og shuffleboard eða bara koma til að spjalla. Veitingar verða í boði.