![Orlofsuppbót 2024](https://byggidn.is/wp-content/uploads/2023/02/iStock-1192260535.jpg)
Orlofsuppbót 2024
Byggiðn vill minna félagsfólk á rétt sinn til að fá greidda orlofsuppbót. Um að ræða fasta fjárhæð atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert.
Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.
Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar. Á almenna vinnumarkaðnum er orlofsuppbótin 58.000 kr. miðað við fullt starf og greiðist 1. júní.