
Orlofsmálin kynnt í nýju fréttabréfi
Orlofsblað Byggiðnar er komið út. Orlofskostir félagsins fyrir komandi sumar eru kynntir í máli og myndum í blaðinu. Þar er einnig grein um aðstöðuna að Stóra-Hofi og nágrenni auk þess sem fjallað er um Ferðaávísun, sumarhúsalóðir, tjaldsvæðið, veiði- og útilegukort og um niðurgreiðslu ferðavagna.
Athygli er vakin á að blaðið verður í vikunni borið heim til þeirra félagsmanna sem náð hafa lífeyrisaldri.
Aðrir fá blaðið með rafrænum hætti eða geta sótt það á skrifstofu félagsins.
Athugið að hægt er að sækja um orlofsúthlutun til 1. apríl næstkomandi. Þann 2. apríl fer úthlutun fram en allir umsækjendur fá svar við umsókn sinni. Þeir sem fá synjun hafa þá kost á því að sækja um lausar vikur til 14.apríl.
Sumartímabilið er að þessu sinni frá 13.júní til 22. ágúst.