Greinar
Opið hús í nýju orlofshúsi

Opið hús í nýju orlofshúsi

Opið hús verður fyrir félagsfólk Byggiðnar í Huldulandi 1, Akureyri, miðvikudaginn 18. september kl. 18:30. Þar er nýtt orlofshús sem félagið fékk afhent á dögnum. Formaður félagsins verður á staðnum, tekur á móti gestum og sýnir þeim húsið.

Hulduland 1 er í Hálöndum, ofan Akureyrar. Um er að ræða glæsilegt 109 fermetra hús, byggt 2022, með þremur svefnherbergjum. Það fer í útleigu eins fljótt og verða má.

Sjá nánar hér.