
Nýráðnir starfsmenn hefja störf
Fjórir nýir starfsmenn hafa hafið störf á skrifstofum Byggiðnar. Á skrifstofunni í Reykjavík eru nýráðin þau Jenna Kristín Jensdóttir, Árni Árnason og Þorvarður Helgi Haraldsson. Árni og Þorvarður Helgi hafa hafið störf en Jenna Kristín byrjar í júlí. Nýr starfsmaður Byggiðnar á Akureyri er Sigmundur Kristberg Magnússon. Hann hefur tekið til starfa.
Starfsfólkið sótti námskeið í síðustu viku þar sem meðal annars var farið yfir Orlofsvefinn og önnur kerfi sem Byggiðn notar til að sinna þjónustu við félagsmenn.
Undir lok dags hittu starfsmennirnir stjórn félagsins á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur, til að kynnast og stilla saman strengi. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri.
Byggiðn býður þau Jennu, Árna, Þorvarð Helga og Sigmund velkomin til starfa.
