
Kynntu iðnnám fyrir ungum konum
Fimmtudaginn 13. mars 2025 var svokölluð Starfamessa haldin í Háskólanum Á Akureyri eins og undanfarin ár.
Starfamessa er stór starfskynning sem felur í sér að bjóða mismunandi starfsstéttum að setja upp kynningarbása þar sem kynnt eru fyrir nemendum þau störf sem unnin eru innan fyrirtækisins eða stofnana og hvaða færni eða menntun þarf til þess að vinna starfið. Með því gefst nemendum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt og spennandi störf og leggja þannig grunninn að menntun sinni í framtíðinni.
Öllum nemendum í 9. og 10. bekk á norðurlandi eystra er boðið á Starfamessuna og í framhaldinu er hún opin fyrir elstu nemendur framhaldsskóla og háskólanemendur.
Um 30 fyrirtæki og stofnanir voru með bása á messunni og voru Gígja Jónsdóttir húsasmiður og Dóra Hartmannsdóttir málari mættar til að kynna Félag Fagkvenna, félag fyrir konur í karllægum iðnaðargreinum. Markmiðið er að vekja áhuga ungs fólks, þá sérstaklega ungra kvenna, á kostum og möguleikum iðnnáms.
