
Keppendur í húsasmíði frá níu skólum
„Hér eru nemendur að keppa úr öllum þeim níu framhaldsskólum sem kenna húsasmíði,“ segir Ólafur Ástgeirsson, sviðsstjóri bygginga- og mannvirkjasviðs hjá IÐUNNI fræðslusetri og umsjónarmaður keppni í húsasmíði á Íslandsmóti iðn- og verkgreina sem stendur yfir í Laugardalshöll.
Í gær og í dag, fimmtudag og föstudag, hefur höllin verið full af nemendum í níunda og tíunda bekk grunnskóla af landinu öllu. Gert er ráð fyrir að um 9 þúsund nemendur heimsæki viðburðinn en auk 19 keppnisgreina fara fram fjölmargar kynningar á framhaldsskólum og hinum ýmsu iðn- og verkgreinum. Sjón er sögu ríkari. Vert er að benda á að á morgun, laugardaginn 15. mars, er höllin opin gestum og gangandi.
Ólafur bendir á að þetta sé í fyrsta sinn sem allir skólar sem kenna fagið eigi fulltrúa í keppni í húsasmíði. Stykkið sem nemendurnir eru að smíða í ár er þessi trappa,“ segir Ólafur og bendir á veggspjald af gripnum. Hann segir að um sé að ræða nýtt stykki sem fyrrverandi deildarstjóri byggingadeildarinnar á Sauðárkróki hafi hannað fyrir IÐUNA.
„Þetta lítur nú kannski út fyrir að vera frekar einfalt verkefni en þegar nánar er að gáð sést að það er ýmislegt flókið við þetta,“ segir hann og bendir á að fæturnir halli og þrepin séu greypt inn í kjálkana, svo dæmi séu tekin. „Þetta eru mörg handtök og er allt unnið með handverkfærum að því frátöldu að nemendur fá að hafa rafmagnsborvél og stingsög auk þess að vera með tæki sem heitir kexvél. Annars er þetta unnið í höndunum. Þetta reynir mjög á það hversu handlagnir nemendurnir eru. Það er auðvitað grunnurinn að því að vera góður iðnaðarmaður; að vera handlaginn,“ útskýrir Ólafur.

Að keppni lokinni metur sveinsprófsnefndin í húsasmíði stykkin. Málsetningar gilda 35%, samsetningar 35% og svo heildaryfirbragð 30%. Ólafur bendir á að fyrir vikið snúist meirihluti matsins um þætti sem hægt sé að mæla. BYKO gefur verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í keppninni en fyrirtækið styrkir einnig keppnina með því að gefa efni. Við hliðina á keppnissvæðinu geta gestir sýningarinnar spreytt sig á að negla nagla í spítu. Óhætt er að segja að það hafi reynst afar vinsæl áskorun á meðal grunnskólanemenda.
Þess má geta að sigurvegari þessarar keppni á Íslandsmótinu fyrir tveimur árum er í haust á leið til Herning í Danmörku til þátttöku á Euroskills.
Eins og áður segir verður opið hús á laugardeginum þar sem allir sem hafa áhuga á iðn og verkgreinum geta komið og fylgst með keppninni eða kynnt sér iðn- og verkgreinar.
