Hjón og börn byggja sex einbýlishús í Grindavík
Hjónin Grettir Sigurjónsson og Alda Margrét Hauksdóttir, íbúar í Grindavík, seldu nýlega einbýlishúsið sitt í bænum, til að geta lagt stað við að byggja sex einingahús; einbýlishús fyrir þau sjálf, börnin þeirra fimm og barnabörn. Fjölskyldan hefur undanfarin misseri unnið að uppsetningu húsanna.
Þetta kom fram í þættinum Gulli byggir, sem sýndur er á Stöð 2, en einnig var fjallað um verkefnið á Vísi.
Fram kom í þættinum að Grindavíkurbær hafi frá fyrsta fundi tekið vel í hugmyndina og greitt götu fjölskyldunnar, svo þetta yrði mögulegt. Þar hefði ekki verið sett fram sú krafa, sem til dæmis sé í gildi í Reykjavík, að forsenda þess að fá lóð sé að standast greiðslumat fyrir einbýlishús.
Hjalti Þór segir í þættinum að kostnaður við hvert hús, komið á áfangastað óbyggt, hafi verið um 19 milljónir króna. Inni í því séu allar hurðir, inni og úti, klæðning, gluggar og þak, svo eitthvað sé nefnt. Í innslaginu kemur fram að við uppsetninguna nutu þau hjónin aðstoðar frá framleiðendum hússins. Tveir menn frá framleiðanda þeirra í Lettlandi komu til landsins til að slá húsunum upp. Húsin eru úr timbri en á steyptri plötu.
Hugmyndin spratt upp úr húsnæðisvandræðum Hjalta Þórs Grettissonar og Sunnu Jónínu Sigurðardóttur, sem einnig er rætt við í þættinum. Hún vatt svo hratt upp á sig.
Húsin eru öll hlið við hlið við nýja götu í bænum. Í þættinum lýsti fjölskyldan því að auðvitað gengi á ýmsu við verkefnið en að fólk sé mjög einbeitt á lokatakmarkið; að allir eignist nýtt hús. „Við stefnum á að eiga stórglæsilegt hús, fólkið sem gat ekki keypt sér íbúð,“ sagði Sunna í þættinum.