Greinar
Hittingur eldri félaga 7. nóvember

Hittingur eldri félaga 7. nóvember

Boðað er til kaffisamsætis eldra félagsfólks í Byggiðn 7. nóvember næstkomandi. Hittingurinn hefst klukkan 14:00 og fer fram á jarðhæð á Stórhöfða 31. Gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin. Allir þeir félagar sem náð hafa lífeyrisaldri eru velkomnir.

Fyrirlesari að þessu sinni verður Leifur Reynisson en hann mun fara yfir gamlar ljósmyndir og annað efni úr sínum fórum. Leifur hefur áður hitt hópinn því fyrr á árinu hélt hann áhugavert erindi undir yfirskriftinni Úr bæ í borg þar sem hann sýndi ljósmyndir frá 6. áratugnum sem vitnuðu um breytingar á Reykjavíkurborg.

Forvitnilegt verður að sjá hvað Leifur sýnir að þessu sinni.