
Góður hittingur eldri félaga
Eldri félagar í Byggiðn hittast á Stórhöfðanum mánðarlega yfir vetrartímann. Síðast hittist hópurinn fimmtudaginn 6. febrúar en viðburðirnir hefjast jafnan klukkan 14:00.
Reglulega koma gestafyrirlesarar á hittinginn og flytja erindi. Að þessu sinni hélt Lísbabet Guðmundsdóttir, minjavörður Vestfjarða, fyrirlestur en hún hefur starfað við fornleifarannsóknir á Íslandi, Grænlandi og í Noregi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar sl. fimmtudag. Byggiðn þakkar eldri félögum fyrir samveruna og skorar á þá félaga á lífeyrisaldri sem ekki hafa mætt, að láta sjá sig næst.










