Greinar
Gleðin við völd í afmæli Byggiðnar á Stórhöfða

Gleðin við völd í afmæli Byggiðnar á Stórhöfða

Byggiðn fagnar um þessar mundir 125 ára afmæli félagsins. Af því tilefni var efnt til afmælisveislu í þremur liðum. Fyrst var boðið til drykkjar á Slippbarnum á föstudagskvöldið en á laugardaginn var hangikjötsveisla og skemmtun á Stórhöfða 31. Í kvöld verður svo smiðshöggið rekið þegar efnt verður til afmælisveislu fyrir félagsmenn fyrir norðan. Viðburðurinn verður í Hofi á Akureyri, milli kl. 17 og 19. Allt félagsfólk á Norðurlandi er hvatt til að mæta og gera sér glaðan dag.

Óhætt er að segja að fyrri viðburðirnir hafi tekist vel. Mæting hefur verið góð og glatt á hjalla. Með þessari frétt fylgja myndir sem annars vegar voru teknar á Slippbarnum en hins vegar á Stórhöfða.

Byggiðn færir félagsfólki sem glaðst hefur með félaginu í tilefni afmælisins bestu þakkir fyrir samveruna! Vonandi verður einnig vel mætt á Akureyri í kvöld.

Hér má lesa pistil formanns í tilefni afmælisins.