
Félagsmenn Byggiðnar á verðlaunapalli

Það var Ólafur Gylfason, hjá Múrarafélagi Akureyrar, sem varð hlutskarpastur á golfmóti iðnfélaganna, sem fram fór á Jaðarsvelli á Akureyri um helgina. Hann sigraði höggleikinn og fór á 77 höggum. Í öðru sæti varð Guðbjörn Ólafsson hjá Rafiðnaðarsambandinu, sem lék á 79. Þriðji varð Heimir Jóhannsson, félagsmaður Byggiðnar, sem lék á 86 höggum.
Annar félagsmaður Byggiðnar komst á pall í punktakeppninni. Sigþór Haraldsson varð annar á 35 punktum en Þórhallur Pálsson, hjá Rafiðnaðarsambandi Íslands, gerði enn betur og fékk 37 punkta. Hann er félagsmaður Rafiðnaðarsambandsins. Þriðji varð Gunnar Berg Gunnarsson hjá Múrarfélagi Akureyrar.
Þetta var annað árið í röð sem mótið fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri og jafnframt í annað sinn sem iðnfélögin halda sameiginlegt golfmót. Veðrið lék við þátttakendur í þetta sinn og var stemmningin góð. 61 keppandi tók þátt í mótinu í þetta sinn.