
Félagsmaður Byggiðnar vann Birtubikarinn

Þór Sigurðsson, félagsmaður Byggiðnar, varð hlutskarpastur í punktakeppni á Golfmóti iðnfélaganna, sem fram fór á laugardaginn. Þór vann því Birtubikarinn.
Í öðru sæti varð Hjörtur Lárus Harðarson frá Félagi iðn- og tæknigreina en Skúli Baldursson, frá Rafiðnaðarsambandinu, varð þriðji.
Í höggleik sigraði Gunnar Kiatkla Eiríksson, en hann lék á 76 höggum. Helgi Runólfsson varð annar á 79 höggum, en þeir Gunnar eru báðir í Rafiðnaðarsambandinu. Þriðji varð Kristján Björgvinsson, sem er í Félagi iðn- og tæknigreina.
Leikið var á Hólmsvelli í Leiru, suður með sjó.
Nánar má rýna í niðurstöður mótsins hér.
Byggiðn hvetur félagsmenn til að „læka“ og fylgjast með samnefndri Facebook-síðu félagsins.