Greinar
Fagfélagið – vinnumiðlun

Fagfélagið – vinnumiðlun

Stjórn Fagfélagsins hefur ákveðið að setja á stofn vinnumiðlun fyrir félagsmenn.

Í því sambandi er verið að hugsa um alla félagsmenn, hvort sem þeir eru atvinnulausir eða hafa áhuga á að skipta um vinnustað. Gangi hugmyndir ríkisstjórnarinnar um framkvæmdir á bygginga- og mannvirkjasviði eftir má gera ráð fyrir að töluverð hreyfing verði á vinnumarkaðnum á næstu mánuðum. ´

Til að þetta sé hægt þarf félagið að koma sér upp lista með nöfnum allra þeirra sem áhuga hafa og eru að leita sér að vinnu.

Þegar listinn er kominn er hægt að benda fyrirtækjum á þá einstaklinga sem á listanum eru.

Þeir sem hafa hug á að skrá sig á listann eru beðnir að hafa samband við;

Vilhjálm Sveinsson í Borgartúni 30, sími 535-6015, tölvupóstfang, vilhjalmur(hjá)fagfelagid.is eða

Heimi Kristinsson í Skipagötu 14, Akureyri, sími 535-6026, tölvupóstur heimir(hjá)fagfelagid.is