Greinar
Desemberuppbót 2015

Desemberuppbót 2015

Desemberuppbótin í ár á almennum markaði, það er fyrir samninga við Samtök atvinnulífsins og Meistarafélag byggingamanna að meðtöldu orlofi, er kr. 78.000 fyri fullt starf og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Starfsmenn sem hafa verið samfellt í starfi hjá sama atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir. (desemberuppbót er ekki inní reiknitölunni)

Sá tími sem starfsmaður er í fæðinarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.

Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.

Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

Desemberuppbót hinna ýmsu samninga er:

v  Ríkissjóður kr. 78.000  

v  Reykjavíkurborg kr. 85.600  

v  Strætó kr. 85.600

v  Orkuveitan kr. 90.500

v  Samband íslenskra sveitafélaga kr. 93.500  (gæti breyst þar sem samningaviðræður standa enn yfir)

v  Landsvirkjun kr. 112.744

Orlofs- og desemberuppbót skal greiða með lokauppgjöri ef starfsmaður hættir starfi hjá atvinnurekanda á árinu. 

 

savings bank 919859 640