Fréttir
Byko og IKEA leggja sitt af mörkum

Byko og IKEA leggja sitt af mörkum

„Næstu misseri munu fara í að endursemja við okkar birgja á þessum forsendum og fá þá í lið með okkur að tryggja áframhaldandi stöðugleika. Mikilvægt er að allir í virðiskeðjunni séu samstíga til að markmiðin náist,“ segir í tilkynningu frá Byko. Fyrirtækið tilkynnti í gær að ákvörðun hafi verið tekin um að hækka ekki verðlistaverð Byko næstu sex mánuði hið minnsta.

Í tilkynningu segir að til að ná þjóðarsátt þurfi allir aðilar að koma að málum, fyrirtæki landsins, hið opinbera og aðilar vinnumarkaðarins. Ákvörðunin hafi verið tekin til að sýna samfélagslega ábyrgð í takti við áherslur fulltrúa verkalýðsforystunnar og atvinnulífsins.

„Við trúum því að með því að stíga þetta skref getum við hvatt aðra til að fylgja okkar fordæmi og þannig stuðlað að heilbrigðara hagkerfi. Góður andi í kjaraviðræðum gefur tilefni til bjartsýni og vill Byko leggja sitt af mörkum til að svo verði áfram,“ er haft eftir Sigurði Brynjari Pálssyni forstjóra Byko.

Við þetta má bæta að IKEA hefur tilkynnt um tæplega 6% verðlækkun um sex þúsund vörutegunda út þetta ár. Fram hefur komið í fréttum að ekki sé útilokað að þessi mikla verðlækun hafi áhrif á neysluvísitöluna og þar með verðbólguna.