
Byggiðn leitar að kjarafulltrúa
Byggiðn hefur auglýst til umsóknar starf kjarafulltrúa á skrifstofu félagsins á Stórhöfða í Reykjavík. Kjarafulltrúinn mun sinna ýmsum verkefnum tengdum vinnumarkaðsmálum, s.s. túlkun kjarasamninga og samskiptum við félagsmenn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Túlkun kjarasamninga
- Aðstoð við félagsmenn varðandi réttindi í orlofs-, fræðslu- og sjúkrasjóði
- Vinnustaðaheimsóknir og samskipti við trúnaðarmenn
- Önnur tilfallandi verkefni skrifstofunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun í byggingagreinum
- Þekking á kjarasamningum og reynsla af skrifstofustörfum kostur
- Þjónustulund, jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þekking á starfsemi stéttarfélaga kostur
- Góð almenn tölvukunnátta og góð íslenskukunnátta skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars nk. og skulu umsóknir berast í gegnum Alfreð.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður Byggiðnar, Jón Bjarni Jónsson, jbj@byggidn.is