Greinar
Bílskúrar og frístundahús undanþegin byggingarleyfi

Bílskúrar og frístundahús undanþegin byggingarleyfi

Ný reglugerð hefur tekið gildi sem ætlað er að straumlínulaga leyfisveitingaferlið við húsbyggingar. Reglugerðin kveður á um upptöku nýs kerfis við flokkun mannvirkja, sem hafa mun bein áhrif á eftirlit sveitarfélaga, meðferð umsókna og útgáfu leyfa vegna allrar mannvirkjagerðar. Nýja flokkunarkerfið þýðir að bygging einfaldari mannvirkja mun ekki lengur vera háð útgáfu byggingarleyfis, heldur nægir að hafa svokallaða byggingarheimild sem mun draga verulega úr flækjustigi í slíkum framkvæmdum.

Frá þessu er greint á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar segir að breytingin sé í takti við áform um einföldun stjórnsýslu byggingamála sem fram koma í nýjum stjórnarsáttmála. Framundan sé frekari endurskoðun m.a. með hliðsjón af tillögum OECD sem gagnrýndi fyrra kerfi leyfisveitinga í mannvirkjagerð í samkeppnismati sínu á íslenskum byggingariðnaði á síðasta ári.

Helstu breytingar sem verða samfara gildistöku reglugerðarinnar eru eftirfarandi:

1) Mannvirki verða flokkuð eftir umfangi, eðli og samfélagslegu mikilvægi í þrjá umfangsflokka:

Í umfangsflokk 1 fellur einföld mannvirkjagerð, s.s. bílskúrar og frístundahús, sem undanþegin verður byggingarleyfi en háð byggingarheimild, sem er nýtt hugtak í byggingarreglugerð. Í þessum flokki verður t.a.m. hvorki skylt að skila séruppdráttum við umsókn né er gerð krafa um ábyrgðaryfirlýsingu iðnmeistara.
Í umfangsflokk 2 fellur mannvirkjagerð sem felur í sér flestar almennar framkvæmdir, s.s. einbýlishús, fjölbýlishús og atvinnuhúsnæði og verður áfram háð byggingarleyfi.
Í umfangsflokk 3 falla mjög flóknar eða umfangsmiklar framkvæmdir, sem hafa jafnvel mikið samfélagslegt mikilvægi, s.s. sjúkrahús, skólar og verslunarmiðstöðvar. Þessi mannvirkjagerð verður háð byggingarleyfi og er fyrirhugað að gera ítarlegri kröfur um eftirlit með hönnun þeirra en áður hefur verið.

2) Gerður verður skýr greinarmunur á tilkynningaskyldri mannvirkjagerð og mannvirkjagerð sem undanþegin er byggingarleyfi, en áður hafði verið fjallað um hvoru tveggja í sama ákvæði. Þá eru ákvæði sem varða palla, girðingar og skjólveggi einfölduð auk þess sem heitir pottar verða nú einungis tilkynningarskyldir, en voru áður byggingarleyfisskyldir.

 

Haft er eftir nýjum innviðaráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni að þetta skref sé mikilvægt til að einfalda stjórnsýslu og leyfisveitingar. „Það hefur verið kallað eftir því lengi að minnka óþarfa flækjustig í einföldum framkvæmdum. Við þurfum að nýta skynsamlega þá fjármuni sem við leggjum í eftirlit með mannvirkjum frekar en að senda fólk út og suður í að afla leyfa til að reisa einfalda skjólveggi eða girðingar. Ég tel að með sameiningu stjórnsýslu húsnæðis-, skipulags- og byggingarmála í einu ráðuneyti, sem nú er að verða að veruleika, verði hægt að stíga fleiri skref til að einfalda leyfisveitingar, auka stafræna upplýsingagjöf og þannig lækka húsnæðisverð, sem skiptir höfuðmáli fyrir almenning.“