
Hvernig eru launin þín í samanburði við laun annarra?
Ný launareiknivél fyrir iðnaðarmenn hefur verið tekin í notkun. Um er að ræða sameiginlega launareiknivél fyrir iðnfélögin en í upphafi er þó valið hvaða stéttarfélagi (og þar með kjarasamningi) maður tilheyrir. Í reiknivélinni er að hægt að reikna út eigin laun, hvort sem um er að ræða tímalaun, mánaðarlaun eða pakkalaun.
Meðal annars er hægt að sjá hver útborguð laun eiga að vera, miðað við gefnar forsendur, og einnig þann viðbótarkostnað launagreiðanda sem hlýst af því að hafa starfsmanninn í vinnu á þeim launum sem upp eru gefin. Í reiknivélinni sést líka hversu margar krónur eru greiddar í skatt, lífeyrissjóð og stéttarfélag, svo dæmi séu tekin. Þá er hægt að bera laun sín saman við laun annarra iðnaðarmanna, svo sem í öðrum fagstéttum.
Reiknivélin er bæði aðgengileg á ensku og íslensku.