Greinar
Atvinnuviðtal

Atvinnuviðtal

Þegar atvinnuumsækjandi fer í viðtal vegna starfs er atvinnurekandi í flestum tilfellum búinn að fá og lesa skriflega atvinnuumsókn viðkomandi. Atvinnuviðtalið veitir hins vegar mikilvægar upplýsingar til viðbótar og getur haft úrslitaáhrif um það hvort atvinnuumsækjandi fær starfið eða ekki og því skiptir höfuðmáli að vera vel undirbúinn.

Atvinnuumsækjandi getur gert ýmislegt til að undirbúa sig fyrir atvinnuviðtalið.

  • Afla upplýsinga um hverjir munu taka viðtalið. Oftast er boðað í atvinnuviðtal símleiðis og þá er hægt að spyrja um þetta atriði.
  • Afla upplýsinga um fyrirtækið og starfsemi þess, t.d. í fyrirtækjaskrám eða á Internetinu.
  • Undirbúa nokkrar spurningar um starfið sem gott er að fá svör við. Viðtalið snýst ekki eingöngu um það hvort vinnuveitandanum líst á atvinnuumsækjandann heldur einnig hvernig atvinnuumsækjandanum líst á atvinnurekandann.
  • Búa sig undir að svara erfiðum spurningum á jákvæðan hátt.
  • Útlitið er það fyrsta sem atvinnurekandinn tekur eftir og því er mikilvægt að vera snyrtilegur til fara en þó ekki „of fínn“ eða áberandi.
  • Mæta stundvíslega.

Þegar í viðtalið er komið er gott að hafa nokkur atriði í huga.

  • Það er ekkert óeðlilegt að vera óstyrkur við þessar kringumstæður.
  • Heilsa öllum með handabandi.
  • Láta viðmælendur um að hefja samtalið.
  • Horfa á þann sem talar og svara þeim sem spyr.
  • Rökstyðja öll svör og svara af einlægni frekar en að reyna að þóknast viðmælandanum.
  • Aldrei að tala niðrandi um fyrri yfirmenn eða fyrri störf.
  • Láta í ljós áhuga fyrir starfinu sem verið er að sækja um.

Í atvinnuviðtali getur atvinnuumsækjandinn þurft að svara mörgum spurningum. Hvaða spurningum nákvæmlega er erfitt að segja til um en nauðsynlegt er að vera búinn að gera sér í hugarlund hverju má eiga vona á. Eftirfarandi spurningar eru dæmigerðar fyrir þær sem atvinnuleitandi gæti fengið:

  • Hvers vegna sækir þú um þetta starf?
  • Hvers vegna hættir þú í síðasta starfi?
  • Hvernig heldur þú að fyrrum samstarfsfólk lýsi þér?
  • Hverjar eru þínar sterku og veiku hliðar?
  • Hvort líkar þér betur að vinna einn eða í hópi?
  • Hvað kallar þú gott starfsumhverfi?
  • Hvernig líkar þér að vinna undir tímapressu?
  • Hefur þú verið frá vinnu í langan tíma samfleytt?
  • Hvers vegna ætti ég að ráða þig?

Undir lok viðtalsins er atvinnuumsækjandi oftast spurður hvort hann hafi einhverjar spurningar. Ekki er mælt með því að hafa spurningar um laun, frí o.s.frv. efstar á listanum en hins vegar eru spurningar sem snúa að starfinu, vinnuaðstæðum, vinnutíma, yfirvinnu og samstarfsfólki mjög eðlilegar.

Þegar viðtalinu er lokið er gott að koma nokkrum atriðum að.

  • Fá uppgefið hvenær búast megi við ákvörðun um ráðningu eða hvenær megi hringja til að fá upplýsingar um ráðningu.
  • Láta í ljós áhuga á að vinnuveitandinn geymi umsóknina ef önnur störf losna.
  • Þakka fyrir og kveðja alla með handabandi.

Heimildir: Vefur Vinnumálastofnunar.