Greinar
Starf móttökufulltrúa laust til umsóknar

Starf móttökufulltrúa laust til umsóknar

Byggiðn – Félag byggingamanna leitar að þjónustulunduðum einstaklingi í starf móttökufulltrúa á skrifstofu félagsins að Stórhöfða 31, 110 Reykjavík. Um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka gesta og símsvörun
  • Þjónusta og samskipti við félagsfólk
  • Umsýsla og skráning, t.d. vegna styrkjaumsókna og bókana orlofshúsa
  • Upplýsingamiðlun og aðstoð vegna réttinda-, mennta- og kjaramála
  • Ýmis tilfallandi verkefni sem starfinu fylgja

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Þekking á málefnum stéttarfélaga er kostur
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku

Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2025. Umsóknir skulu berast í gegnum vefinn www.alfred.is. Öllum umsóknum verður svarað.

Nánari upplýsingar um starfið veitir formaður Byggiðnar, Jón Bjarni Jónsson, í gegnum netfangið jbj@byggidn.is.