
Mín framtíð í Laugardalshöll – opið hús á laugardag
Íslandsmót iðn- og verkgreina stendur nú yfir í Laugardalshöll. Keppt er í 19 greinum, þar á meðal í húsasmíði. Nánar verður fjallað um keppnina hér á síðunni á næstu dögum.
Auk þessa eru 25 framhaldsskólar með kynningarbása og fjölmargar iðn- og verkgreinar eru til sýnis.
Í gær og í dag hefur höllin verið full af nemendum í níundu og tíundu bekkjum grunnskóla af landinu öllu. Gert er ráð fyrir að um 9 þúsund nemendur heimsæki viðburðinn.
Vert er að benda á að á morgun, laugardaginn 15. mars, er höllin opin gestum og gangandi. Félagsfólk er hvatt til að mæta og kynna sér það sem er á boðstólnum.
Hér fyrir neðan eru myndir sem teknar hafa verið á Minni framtíð.