Greinar
Ert þú efni í ungan leiðtoga?

Ert þú efni í ungan leiðtoga?

Skráning er nú hafin á námskeið á vegum ASÍ sem ber yfirskriftina „Ungir leiðtogar“. Námskeiðið, sem notið hefur mikilla vinsælda, verður haldið í þriðja sinn vorið 2025. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir ungt fólk (18–35 ára) innan verkalýðshreyfingarinnar til að fræðast um hreyfinguna, efla tengslanet sitt og þróa leiðtogahæfileika sína.

Af hverju „Ungir leiðtogar“?

Ungt fólk (18–35 ára) er stór hópur á vinnumarkaði en tekur oft takmarkaðan þátt í stjórnum, nefndum og ákvörðunum innan hreyfingarinnar.
Námskeiðið hjálpar ungu launafólki að láta rödd sína heyrast og takast á við áskoranir á vinnumarkaði.
Með þátttöku öðlast þau bæði fræðilega þekkingu á verkalýðshreyfingunni og hagnýta færni í ræðumennsku, framkomu og sjálfstyrkingu.
Námskeiðið skiptist í þrjár lotur, þar sem fyrsta lota fer fram í Reykjavík, önnur á netinu og sú þriðja í Brussel.

Þátttakendur munu:

  • Hitta sérfræðinga innan og utan hreyfingarinnar.
  • Mynda sterkt tengslanet þvert á starfsgreinar og landshluta.
  • Kynnast alþjóðlegri verkalýðshreyfingu og styrkja stöðu sína sem fulltrúar ungs fólks.

Byggiðn og ASÍ greiða kostnað við þátttöku. Innifalið er meðal annars flug, ferðir og gisting í Brussel.

Byggiðn leitar að ungum fulltrúm úr röðum félagsins til að sækja námskeiðið. Áhugasamir geta haft samband við byggidn@byggidn.is til 29. janúar.