
Smiðshöggið rekið á afmælisfögnuðinn
Smiðshöggið á 125 ára afmælisfögnuð Bygginðar var rekið í Hofi á Akureyri fá fimmtudag, þar sem félagsfólki boðið var til veislu. Áður hafði félagið boðið félagsfólki til veislu á Stórhöfða og þar á undan til samveru á Slippbarnum.
Óhætt er að segja að veisluhöldin hafi tekist vel og verið ánægjuleg. Á Akureyri á fimmtudag hittust til að mynda fimm formenn og varaformenn félagsins. Þeir eru á meðfylgjandi mynd. Frá vinstri: Jón Bjarni Jónsson, Finnbjörn Hermannsson, Guðmundur Ómar Guðmundsson, Heimir Kristinsson og Grétar Þorsteinsson.
Byggiðn færir félagsfólki bestu þakkir fyrir ánægjulega samveru á þessum viðburðum.
Myndir frá viðburðunum þremur má sjá hér að neðan.