
Saga fagmennsku, samstöðu og framþróunar
Pistill frá formanni félagsins í tilefni 125 ára afmælis félagsins.
Pistillinn birtist fyrst í afmælisblaði Byggiðnar
Í dag, þann 10. desember 2024, eru 125 ár frá því Trésmiðafélag Reykjavíkur, forveri Byggiðnar, var stofnað. Að sama skapi voru þann 24. janúar síðastliðinn liðin 120 ár frá stofnun Trésmiðafélags Akureyrar, annars forvera félagsins.
125 ára afmæli Byggiðnar er merkisáfangi sem endurspeglar langa sögu af fagmennsku, framþróun og sterku samfélagi byggingarmanna. Félögin sem tilheyra sögu Byggiðnar hafa frá upphafi staðið vörð um réttindi og hagsmuni iðnaðarmanna í byggingargeiranum, lagt sitt af mörkum til að efla gæði og öryggi í greininni og tryggt að byggingarmenn njóti sanngjarnra kjara og virðingar í samfélaginu.

Saga félagsins ber vitni um miklar breytingar, bæði í vinnubrögðum og tækni. Á þessum 125 árum hefur Byggiðn leitt nýsköpun og stuðlað að símenntun iðnaðarmanna til að mæta breyttum kröfum og nýjum tækninýjungum. Félagið hefur staðið fyrir stöðugri uppbyggingu þekkingar og faglegrar þróunar sem hefur mótað íslenskan byggingariðnað, bæði með gæðum og öryggi að leiðarljósi.
Á þessum tímamótum gefst tilvalið tækifæri til að horfa fram veginn. Fagmennska, nýsköpun og samstaða mun þar áfram leika lykilhlutverk. Við þurfum stöðugt að vinna að því að bæta starfsumhverfið og kjörin, komandi kynslóðum byggingamanna til heilla.
Dýrmæt endurmenntun
Í gegnum Iðuna fræðslusetur stendur félagið að öflugri endurmenntun í byggingariðnaðinum. Iðan leikur mikilvægt hlutverk í að búa félagsfólk undir nýja tækni og vinnuaðferðir. Ég vil nota þetta tækifæri og hvetja félagsfólk til að sækja námskeið Iðunnar og tileinka sér þannig nýjustu aðferðir og efni í byggingaiðnaði hverju sinni.
Það hefur allt of lengi viðgengist að starfsmenn, sem hvorki hafa réttindi né viðeigandi þekkingu, byggi hús á Íslandi, með tilheyrandi tjóni og kostnaði fyrir kaupendur. Virk endurmenntun stuðlar að fagmennsku og gerir okkur kleift að viðhalda þekkingu okkar og hæfni.
Fagmennska felur í sér ábyrgð, heiðarleika og virðingu fyrir því verki sem verið er að vinna. Hún kemur fram í nákvæmri áætlanagerð, faglegu handverki, réttri notkun efnis og búnaðar og ekki síst góðu samstarfi við alla sem að verkunum koma. Hún tryggir að framkvæmdir uppfylli lög, reglugerðir, gæðastaðla og öryggiskröfur og stuðlar að trausti milli almennings og hagsmunaaðila á byggingamarkaði. Fagmennska hefur bein áhrif á gæði mannvirkja og er hornsteinn heilbrigðs byggingaiðnaðar.
Framtíðarsýn byggingaiðnaðarins í heimi þar sem tækniþróun er hröð, felur í sér aðlögun að nýjum og sjálfbærari vinnubrögðum. Gervigreind, sjálfvirknitækni og snjallbyggingar skapa nýjar leiðir til að hámarka orkunýtingu, draga úr sóun og auka öryggi á vinnustöðum. Með þessari þróun verða byggingaferlar skilvirkari og umhverfisvænni, en hún krefst einnig stöðugrar færniuppfærslu iðnaðarmanna. Byggingaiðnaðurinn mun þurfa að tileinka sér nýjustu tæknilausnir og vera opinn fyrir sífelldum breytingum til að mæta væntingum samfélagsins, vera samkeppnishæfur og bregðast við loftslagsáskorunum framtíðar.
Öruggari framtíð
Iðan fræðslusetur og Rafmennt vinna nú saman að stofnun öryggisskóla iðnaðarins. Markmiðið er að bæta öryggi og vinnuvernd í íslenskum iðnaði ásamt því að skapa sterka öryggismenningu á vinnustöðum. Þessi markmið ríma afar vel við áherslur Byggiðnar sem mun áfram vinna að því að styrkja vinnuvernd og hvetja til innleiðingar á bestu öryggisvörnum hvers tíma. Skólinn mun bjóða upp á fræðslu og þjálfun sem snýr að öryggismálum, vinnuvernd og nútímalausnum í öryggisbúnaði.
Byggiðn mun áfram leggja áherslu á nauðsyn þess að standa vörð um félagsleg réttindi og jafnræði á vinnumarkaði. Með öflugri réttindabaráttu og hagsmunagæslu stuðlar félagið að heilbrigðari vinnumarkaði, auknu starfsöryggi og bættum aðstæðum fyrir byggingamenn.
Við fögnum 125 ára sögu Félags byggingamanna með stolti. Mér er efst í huga þakklæti til allra þeirra sem komið hafa að uppbyggingu félagsins. Við horfum björtum augum til framtíðar og leggjum okkur fram um að viðhalda og styrkja arfleifð félagsins, þannig að við getum áfram verið öflugt afl í íslenskum byggingariðnaði og stuðlað að betri kjörum fyrir alla iðnaðarmenn.
Takk fyrir samstarfið í gegnum árin – saman sköpum við öruggari og vandaðri framtíð.
Jón Bjarni Jónsson