
Kynningarfundir vegna nýs kjarasamnings
Nýr kjarasamningur Samiðnar, fyrir hönd Byggiðnar og annarra aðildarfélaga, og Samtaka atvinnulífsins var undirritaður í Karphúsinu í gær, fimmtudaginn 7. mars.
Samhliða undirrituninni kynntu stjórnvöld umfangsmiklar aðgerðir sem styðja eiga við heimili, stuðla að uppbyggingu hagkvæms húsnæðis, draga úr verðbólgu og lækka vexti. Aðgerðir stjórnvalda til stuðnings markmiði kjarasamninga eru metnar á 80 milljarða króna.
Í stuttu máli kveður nýr kjarasamningur á um 3,25% hækkun frá 1. febrúar síðastliðnum. Næstu þrjú árin munu laun hækka árlega um 3,5%. Lágmarksávinnsla orlofs verður 25 dagar og orlofs- og desemberuppbót hækkar, svo eitthvað sé nefnt.
Byggiðn stendur í næstu viku fyrir kynningarfundum til að fara yfir efnisatriði samningsins. Þeir verða sem hér segir:
- Miðvikudaginn 13. mars klukkan 17:00, Stórhöfða 31, Reykjavík, (ath. gengið inn Grafarvogsmegin.)
- Sameiginlegur félagsfundur Byggiðnar og FMA, fimmtudaginn 14. mars kl. 17:00 í Hofi Akureyri.
- Sameiginlegur félagsfundur Byggiðnar og FMA, föstudaginn 15. mars kl. 16:00 í Sal verkalýðsfélaganna, Eyrargötu 24b, Siglufirði.
Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning hefst þriðjudaginn 12. mars klukkan 12:00. Hún stendur yfir til hádegis þriðjudaginn 19. mars.
Trúnaðarráðsfundur á þriðjudag
Haldinn verður fundur í trúnaðarráði þriðjudaginn 12 .mars klukkan 17:00. Fundurinn verður haldinn á Stórhöfða í Reykjavík og á Skipagötu á Akureyri.