
Samkomulag um rekstur Iðnaðarsafnsins
Minjasafnið á Akureyri hefur nú tekið við rekstri Iðnaðarsafnsins í bænum. Samkomulag þess efnis hefur verið undirritað.
Fram kemur í tilkynningu frá Akureyrarbæ að annars vegar hafi samkomulag verið undirritað milli meirihluta stofnaðila Iðnaðarsafnsins á Akureyri, sem eru Akureyrarbær, Eining-Iðja og Byggiðn um að fela Minjasafninu á Akureyri að annast rekstur Iðnaðarsafnsins næstu þrjú árin. Hins vegar var undirritaður þjónustusamningur sem Akureyrarbær gerir við Minjasafnið um verkefnið.
Í tilkynningunni segir að markmið samkomulagsins séu meðal annars að:
- Festa Iðnaðarsafnið í sessi og efla það til framtíðar
- Viðhalda og þróa áfram það merka frumkvöðlastarf sem Iðnaðarsafnið og aðstandendur þess hafa staðið fyrir frá stofnun þess
- Tryggja áframhaldandi samfellu í starfsemi Iðnaðarsafnsins, öruggan rekstur og varðveislu safngripa
- Nýta fagþekkingu og reynslu starfsmanna Minjasafnsins í þágu Iðnaðarsafnsins
Í frétt á Akureyri.net er haft eftir Heimi Kristinssyni, varaformanni Byggiðnar, sem skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd félagsins, að það væri ekkert launungarmál að stjórn Iðnaðarsafnsins hefði viljað fara aðra leið í rekstri safnsins. Niðurstaða lægi hins vegar fyrir og að unnið yrði samkvæmt henni.
Safnið verður fyrst um sinn opið á milli klukkan 13 og 16 um helgar á meðan starfsfólk gerir breytingar á sýningunum. Stefnt er að daglegri opnun, milli 13 og 16 frá og með sumardeginum fyrsta og klukkan 11-17 frá 1. júní næstkomandi.
Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson