Sérstakur gestur á fundi eldri félagsmanna

Byggiðn býður eldri félögum til fundar fimmtudaginn 7. mars næstkomandi, klukkan 14:00. Að þessu sinni verður sérstakur gestur á fundinum.
Leifur Reynisson sagnfræðingur mun leiða gesti í gegn um sögu 6. áratugarins út frá gömlum ljósmyndum úr Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Dregin verður upp mynd af því hvernig Reykjavík breyttist úr bæ í borg. Leitast verður eftir því að skapa umræður út frá myndunum.
Byggiðn hvetur sem flesta eldri félagsmenn til að mæta á þennan skemmtilega viðburð.