Greinar
Byggiðn ekki á leið í verkfall með Fagfélögunum

Byggiðn ekki á leið í verkfall með Fagfélögunum

Byggiðn er ekki meðal þeirra Fagfélaga sem boðað hafa und­ir­bún­ing verk­fallsaðgerða. Mbl.is vekur í dag athygli á þessu en eins og félagsfólki er kunnugt fer Samiðn með samningsumboð fyrir hönd félagsins. Samiðn hefur verið hluti af Breiðfylkingunni, sem svo hefur verið nefnd.

Fagfélögin samanstanda af RSÍ, MATVÍS, VM og Byggiðn. Í yfirstandandi kjaraviðræðum eru RSÍ, MATVÍS og VM saman í kjarabaráttu fyrir sitt fólk en Byggiðn er undir hatti Samiðnar.

Hér má lesa frétt mbl.is, þar sem rætt er stuttlega við formann félagsins vegna þessa máls.

Á meðfylgjandi mynd er framkvæmdastjórn Samiðnar.