
Út í bláinn 28. janúar
Gönguhópurinn Út í bláinn trítlar af stað með hækkandi sól. Fyrsta ganga ársins verður 28. janúar. Fyrirkomulag gönguferðanna verður með óbreyttu sniði frá umliðnum árum. Lagt verður af stað með rútu frá Stórhöfða 31 klukkan 13:00.
Ferðir verða farnar síðasta sunnudag í hverjum mánuði út maí.
Allt félagsfólk er velkomið, því að kostnaðarlausu.