
Hækkun greiðslna úr fræðslusjóði
Í desember síðastliðinn ákvað stjórn Byggiðnar að hækka greiðslur úr fræðslusjóði félagsins til félagsmanna. Hækkanirnar tóku gildi um áramótin.
- Námsstyrkur er að hámarki 45.000 kr.
- Tómstundastyrkur er að hámarki 25.000 kr.
- Sveinsprófsstyrkur er 80.000 kr.
Nánari upplýsingar um þessa styrki er að finna á mínum síðum.
Byggiðn á aðild að IÐUNNI fræðslusetri í gegn um þátttöku sína í Samiðn – sambandi iðnfélaga. IÐAN stendur fyrir fjölbreyttu námsframboði í þeim iðngreinum sem félagar í Byggiðn starfa við. Þar má sækja námskeið í grunnámi, endur- og símenntun auk einstakra námskeiða. Félagsmenn geta sótt þessu námskeið á niðurgreiddu verði.
Athygli er vakin á því að félagsmenn, sem greitt er af í endurmenntunarsjóði IÐUNNAR, geta sótt um styrk vegna náms til aukinna ökuréttinda. Viðkomandi félagsmaður þarf að færa rök fyrir umsókn sinni en skilyrði fyrir veitingu styrks er að aukin ökuréttindi tengist starfi á fagsviði viðkomandi félagsmanns. Styrkurinn getur að hámarki numið 150 þúsund krónum.