
Fjölmörg námskeið á dagskrá
Fjölmörg námskeið eru á dagskrá IÐUNNAR fræðsluseturs á næstunni. Vorönnin, þegar kemur að námskeiðum fyrir byggingamenn, hefst 9. janúar þegar fram fer námskeið í byggingakrönum, sem kennt verður á pólsku. Stafræn gæðastýring í byggingariðnaði og stjórnbúnaður hitakerfa er svo á meðal viðfangsefna næstu námskeiða.
Byggiðn er aðili að IÐUNNI fræðslusetri og fá félagsmenn því námskeiðin á kostakjörum.