
Kveður eftir 20 ár í starfi
„Þetta hefur verið mjög góður vinnustaður,“ segir húsasmiðurinn Oddbjörn Friðvinsson, starfsmaður Byggiðnar til ríflega tveggja áratuga. Oddbjörn lætur um áramótin af störfum fyrir félagið eftir að hafa sinnt mælingum síðastliðin 20 ár – og sex mánuðum betur. Hann varð 67 ára í haust.
Uppmæling er aðferð til þess að mæla afköst þannig að mælt er magn þess sem framkvæmt er í mælanlegum stærðum; metrum, stykkjum, fermetrum o.s.frv. Þannig er tryggt að menn fái greitt í samræmi við vinnuframlag sitt og verkkaupinn greiðir sama verð, hver sem vinnur verkið og hversu langan tíma það tekur. Áratuga löng hefð er fyrir uppmælingakerfinu og eitt af fyrstu baráttumálum félagsins var að koma reglu á verðlagningu einstakra verkþátta trésmiða.
„Mælingin stendur því miður ekki alveg nógu vel. Hún er frekar að dala en hitt,“ segir Oddbjörn. Hann segir aðspurður að þeir sem eiga gott með að skipuleggja sig og eru iðnir geti haft mjög góðar tekjur af því að vinna í mælingu. Hann segir ekki gott að segja hvers vegna mælingin sé á undanhaldi. „Kannski, þegar mikið er að gera, eiga menn auðveldara með að semja um hærra tímakaup. Ungir menn sem prófa þetta fá kannski ekki strax þá útkomu sem þeir hafa heyrt að hægt sé að ná – og gefast þá kannski of fljótt upp,“ segir hann.
Oddbjörn segir að flestir sem vinni í mælingu séu menn á hans aldri. „Mínir gömlu vinnufélagar eru margir hverjir enn að vinna í mælingu og hafa gert það í tugi ára. Þeir hafa haft töluvert góð laun,“ útskýrir hann. „Þessir menn skipuleggja sig vel og halda sig að verkinu. Þeir búa yfir mikilli reynslu og afkasta miklu – enda er þetta kerfi sem hvetur til afkasta. Menn fá bara borgað fyrir það sem þeir gera.“
Oddbjörn segir að Byggiðn fari í hverjum mánuði á þá vinnustaði þar sem félagsmenn vinna við mælingu og taki upp mælingarnar. Þær séu merktar inn á teikningar. Svo fer hann með gögnin á skrifstofuna og reiknar út tekjurnar. „Þeir sem vinna í þessu þurfa að halda góða skrá yfir það sem þeir gera og láta okkur fá ýmsar upplýsingar.“
Spurður hvað taki við segir Oddbjörn að hann hafi eitt og annað á prjónunum. Hann segist hlakka til að ljúka vinnuferlinum. Þetta sé orðið ágætt, eins og hann orðar það. „Ég klára kannski sumarbústaðinn minn,“ segir hann glaðbeittur.