Ákvæðisvinna – reiknitölur
Gildir frá 1. janúar 2025 – Verð á einingu vegna ákvæðisvinnu | |
---|---|
– Húsasmiðir án kostnaðarliða – verð á einingu | kr. 15,54 |
– Viðbótarálag vegna yfirvinnu húsasmiða | 50% |
– Viðbótarálag vegna stórhátíðarvinnu húsasmiða | 80% |
– Reiknitala ákvæðisv. múrara með kostnaðarl. – pr. eining | kr. 148,58 |
– Reiknitala ákvæðisv. pípulagningamenn með kostnaðarliðum – verð á einingu | kr. 18,65 |
– Reiknitala ákvæðisv. málara með kostnaðarliðum – verð á einingu | kr. 11,28 |
Innágreiðsla á mælingu og tilfallandi tímavinna:
Þegar samið er um innágreiðslur á mælingu og laun fyrir tilfallandi tímavinnu með uppmælingu er verkfæragjald samkvæmt grein 15.1.9. innifalið í launatölum og dregst það því frá við greiðslu launa fyrir óunna helgidaga og við greiðslu launa í veikindum.
Iðnaðarmenn 2 með skemmra nám en sveinspróf fái 90% af útkomu mælingar. Þó skulu þeir aldrei vera lengur en 2 ár á skertu hlutfalli. Fyrstu þrjá mánuði í mælingavinnu er heimilt að greiða þeim tímakaup (til reynslu).