Greinar
Fyrstu námskeið haustins handan við hornið

Fyrstu námskeið haustins handan við hornið

Stutt er í að IÐAN fræðslusetur haldi fyrstu námskeiðin eftir sumarfrí. Þann 16. ágúst fer fram vinnuvélanámskeið. Það er fyrir þá sem þurfa að nota vinnuvélar og veitir bókleg réttindi á lyftara með 10 tonna lyftigetu og minna, dráttarvélar með tækjabúnaði og minni gerðir jarðvinnuvéla (4 tonn og undir), körfukrana, steypudælur, valtara, útlagningarvélar fyrir bundið slitlag og hleðslukrana á ökutækjum með allt að 18 tonna lyftigetu. Námskeiðið er haldið af Vinnueftirlitinu og er 21 klukkustund að lengd.

Þann 25. ágúst er svo í boði námskeið um röraverkpalla. Á námskeiðinu er farið yfir reglugerð og helstu lög og reglur/reglugerðir og staðla sem mikilvægt er að þeir sem vinna við uppsetningu og niðurtöku röraverkpalla kunni skil á. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt en lesa má nánar um það hér.

Dagskrá námskeiða hjá IÐUNNI má sjá hér.