
Bann við vinnu
Vinnueftirlitið hefur það að stefnu að miðla upplýsingum sem stuðla að forvörnum gegn vinnuslysum og atvinnusjúkdómum með gildi stofnunarinnar að leiðarljósi og í samræmi við gildandi upplýsingarlög, af þeirri ástæðu birtir stofnunin allar ákvarðanir sínar um bann við vinnu.
Öll vinna bönnuð við byggingarframkvæmdir að Grensásvegi 12
16.11.2017
Við eftirlitsheimsókn Vinnueftirlitsins á byggingarvinnustað að Grensásvegi 12 í Reykjavík, kom í ljós að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna var ekki í samræmi við lög og reglur. Var öll vinna bönnuð á verkstað þar sem líf og heilbrigði starfsmanna var talinn hætta búinn, uns búið er að gera úrbætur og Vinnueftirlitið hefur leyft vinnu þar á ný.
Hér er hægt að sjá ákvarðanir Vinnueftirlitsins.