
Desemberuppbót 2015
Desemberuppbótin í ár á almennum markaði, það er fyrir samninga við Samtök atvinnulífsins og Meistarafélag byggingamanna að meðtöldu orlofi, er kr. 78.000 fyri fullt starf og skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Starfsmenn sem hafa verið samfellt í starfi hjá sama atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1.desember eiga rétt á desemberuppbót. Starfsmenn í ákvæðisvinnu fá greidda desemberuppbót líkt og aðrir. (desemberuppbót er ekki inní reiknitölunni)
Sá tími sem starfsmaður er í fæðinarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Desemberuppbót hinna ýmsu samninga er:
v Ríkissjóður kr. 78.000
v Reykjavíkurborg kr. 85.600
v Strætó kr. 85.600
v Orkuveitan kr. 90.500
v Samband íslenskra sveitafélaga kr. 93.500 (gæti breyst þar sem samningaviðræður standa enn yfir)
v Landsvirkjun kr. 112.744
Orlofs- og desemberuppbót skal greiða með lokauppgjöri ef starfsmaður hættir starfi hjá atvinnurekanda á árinu.