Greinar
Frá aðalfundi, heilsufarsskoðun

Frá aðalfundi, heilsufarsskoðun

 

Stjórnin lagði fram eftirfarandi tillögu til aðalfundar Byggiðnar – Félags byggingamanna um ráðstöfun fjár úr sjúkrastyrktarsjóði til heilsueflingar félagsmanna

„Aðalfundur Byggiðnar haldinn fimmtudaginn 26.  mars 2015 samþykkir að veita stjórn heimild til að skipuleggja almenna heilsufarsskoðun fyrir félagsmenn. Til þess er stjórn heimilt að verja úr sjúkrastyrktarsjóði allt að kr. 3.000.000.  Heilsufarsskoðunin skal vera í samvinnu við viðurkenndan aðila svo sem Hjartavernd, krabbameinsfélagið eða heilsugæsluna.“

Tillagan var samþykkt og mun stjórnin vinna frekar að málinu og kynna fyrir félagsmönnum þegar gengið hefur verið frá því með hvaða hætti skoðunin fer fram.

 

aðalfundur 2015