Greinar
Vel heppnað þing ASÍ

Vel heppnað þing ASÍ

Byggiðn átti fimm fulltrúa á nýafstöðu þingi ASÍ, sem fram fór seinnipart síðustu viku. Þeirra á meðal var Finnbjörn Hermannsson, sem á þinginu var endurkjörinn forseti ASÍ án mótframboðs. Þá gegndi Jóhann Pétur Guðvarðsson, ritari í stjórn Byggiðnar, hlutverki ritara á þessu 46. þingi ASÍ.

Þrír öflugir málefnahópar störfuðu á þinginu. Þeir hétu Þjónusta í þágu almennings, auðlindir í þágu þjóðar og samkeppni í þágu samfélags. Þessir hópar mörkuðu stefnu ASÍ í þessum málaflokkum en hana má lesa með því að smella á hlekkina. Málefnavinnan á þinginu þótti afar vel heppnuð og mikill kraftur var í þingstörfum.

Þingið samþykkti fimm ályktanir. Ein var um stofnun framtíðarnefndar ASÍ en nefndin skal meðal annars fjalla um áskoranir og tækifæri vinnandi fólks í framtíðinni að því er snertir tæknibreytingar, lýðfræðilegar breytingar, sjálfvirknivæðingu og nýtingu gervigreindar.

Önnur ályktun var samþykkt um aðgerðir gegn einbeittri og síaukinni brotastarfsemi á vinnumarkaði.

Þingið ályktaði líka um húsnæðismál en þar segir að brýnt sé að stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög, standi við gefin loforð í húsnæðismálum og hefji hér stórfellda og tafarlausa uppbyggingu, svo eitthvað sé nefnt.

Ályktun var einnig samþykkt um ráðstöfun séreignasparnaðar til greiðslu íbúðarhúsnæðis.

Loks samþykkti þingið ályktun um vaxtaokur og verðtryggingu.

Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá þingfulltrúa Byggiðnar á 46. þingi ASÍ. Frá vinstri: Heimir Kristinsson varaformaður Byggiðnar, Jóhann Pétur Guðvarðsson, ritari félagsins og þingsins, Sóley Rut Jóhannsdóttir, gjaldkeri Byggiðnar, Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ og fyrrverandi formaður félagsins og Jón Bjarni Jónsson, formaður Byggiðnar.

Hér fyrir neðan má annars vegar sjá mynd af Finnbirni og eiginkonu hans Guðríði Helgadóttur garðyrkjufræðingi. Til hægri er svo mynd af fjórum af fimm þingfulltrúum Bygginðar á góðri stund.