Greinar
Sumarúthlutun 2026

Sumarúthlutun 2026

Félagsmenn geta sótt um sumarúthlutun orlofshúsa 2026 á tímabilinu frá 12. mars til 30. mars. Daginn eftir, þann 31. mars, fá allir sem sækja um svar við umsókn sinni. Þeir sem fá synjun hafa þá kost á því að sækja um lausar vikur til 14. apríl.

Sumartímabilið er að þessu sinni frá 5. júní til 28. ágúst. Þann 14. apríl rennur greiðslufrestur vegna sumarúthlutunar út en daginn eftir verður opnað fyrir umsóknir um þær vikur sem ekki var úthlutað. Þá gildir fyrirkomulagið fyrstur kemur – fyrstur fær.

Félagsmenn eru hvattir til að skila umsóknum sínum um orlofshús tímanlega og hafa fyrr en síðar samband við skrifstofu Byggiðnar ef eitthvað er óskýrt í þeim efnum – eða ef þeir þurfa aðstoð við umsóknina. Sótt er um orlofshús á orlofsvefnum.

Byggiðn á glæsilegt tjaldsvæði á Stóra-Hofi.

Punktakerfi er sem fyrr notað við úthlutun en félagsmaður ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann greiðir félagsgjald. Þegar tveir eða fleiri sækja um orlofshús fær sá sem hefur fleiri punkta húsið.

Vikuleiga í orlofshúsin þetta árið kostar á bilinu 33.500 – 46.000 krónur en verðið hefur nokkurn veginn fylgt verðlagi undanfarin ár. Stærð húsanna og staðsetning stýrir verðinu, sem er þó afar hófstillt.

Tjaldsvæðið á Stóra-Hofi

Byggiðn minnir á tjaldsvæði félagsins á Stóra-Hofi. Þar er glæsileg aðstaða fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra.

Orlofshús og -íbúðir sem standa til boða í sumar:

OrlofseignVerð 2026
Stóra-Hof – íbúðarhús42.000 kr.
Hátún 3, Stóra-Hofi42.000 kr.
Svignaskarð 1142.000 kr.
Svignaskarð 2542.000 kr.
Ölfusborgir 3 og 433.500 kr.
Vatnsfjörður – Flókalundur33.500 kr.
Brautarholt, Blönduós42.000 kr.
Skógarmelar 3, Fnjóskadal42.000 kr.
Skemman  Veislusalur með eldhúsi og  salernum42.000 kr.
Hulduland 1, Akureyri42.000 kr.
Furulundur 10, Akureyri33.500 kr.
Einarsstaðir á Héraði33.500 kr.
Sóltún 28, Reykjavík46.000 kr.

Athugið að eignirnar og aðrir orlofskostir félagsins verða kynntir nánar í orlofsblaði Byggiðnar, sem er í vinnslu.

Þjónustuhúsið á tjaldsvæðinu á Stóra-Hofi býður upp á frábæra aðstöðu fyrir gesti tjaldsvæðisins.