Greinar
Orlofsblað Byggiðnar komið út

Orlofsblað Byggiðnar komið út

Nýtt orlofsblað Byggiðnar er komið út og þar er farið yfir helstu orlofskosti félagsins fyrir sumarið 2026, ásamt upplýsingum um aðstöðu og þau fríðindi sem félagsmenn geta nýtt sér.

Í blaðinu er farið yfir fjölbreytta orlofskosti víðs vegar um landið og bent á að félagið býður upp á góða aðstöðu fyrir félagsmenn, þar á meðal orlofshús, tjaldsvæði og svæði til útivistar á jörð félagsins á Stóra-Hofi. Þá er einnig fjallað um ýmsa möguleika sem standa félagsmönnum til boða, svo sem Ferðaávísun sem nýtist til gistingar og afþreyingar.

Punktakerfi gildir áfram við sumarúthlutun. Vikuleiga í orlofshúsum sumarið 2026 kostar á bilinu 33.500 til 42.000 krónur.

Sumarúthlutun – umsóknartímabil

Umsóknartímabilið fyrir sumarúthlutun orlofshúsa hefst 12. mars og stendur til 30. mars. Daginn eftir, 31. mars, fá umsækjendur svar og þeir sem fá synjun geta sótt um lausar vikur til 14. apríl. Greiðslufrestur rennur út 14. apríl og daginn eftir verður opnað fyrir umsóknir um þær vikur sem ekki var úthlutað, samkvæmt reglunni fyrstur kemur fyrstur fær.

Sumartímabilið er frá 5. júní til 28. ágúst.

Áhugasemir geta nálgast prentað eintak af orlofsblaðinu á skrifstofu félagsins.